Tölvur og hugbúnaður
Frjálst "UniX" fjölnotenda stýrikerfi fyrir pésa og makka
með X-gluggakerfi. Frábært framtak sem hefur sannað gildi sitt.
- LINUX er notað á allt frá
ofurtölvum til snjallsíma. Langflestar ofurtölvur veraldar nota LinuX.
Kerfið er netlægt. Samskiptastaðlar eru
hannaðir inn í grunn þess þannig að skrákerfi og grafísk vinnsla
eru ekki bundin við eina vél. Athugið örugg dulkóðuð samskipti með "ssh", "scp", "sshfs",
"rsync" og "fish" í Konqueror.
LinuX er þróað opið af áhugamönnum og
fyrirtækjum um víða veröld. Til eru margar LinuX-dreifingar eins og
Slacware, Debian, Ubuntu, Mint, OpenSuSE, Redhat, Arch Linux og fjölmargar
aðrar. Þessi fjölbreytni hefur leitt til mikilla framfara með öflugri
samkeppni um sniðugar og hentugar lausnir fyrir mismunandi þarfir notenda.
Bash-skelin verður enn öflugri með
miklu safni gnu-hjálparforrita.
- KDE, Taktu völdin á skjáborðinu!
Ég er alinn upp við skipanalínu og minimalisma, en leyfi mér allan grafískan
munað sem KDE býður uppá. Ég notaði lengi vel
Kontact með "imap" sem er frábært
fyrir póstinn og dagatalið, en einfaldara er að nota
Claws mail eða Thunderbird
til þess að geta speglað
póstmöppur milli vinnustöðva með rsync. Bæði forritin eru með
gnupg dulkóðun til þess að loka "umslaginu" og
halda forvitnum í hæfilegri fjarlægð. Enigmail er frábær
viðbót við Thunderbird til að sjá um dulkóðun á einfaldan hátt.
Þar er boðið upp á Autocrypt og p≡p.
Í Android síman er gott að nota opna póstforritið K9, sem styður gnupg í gegnum
OpenKeychain.
"Konqueror" er vafri og skráaumsjónarkerfi sem leyfir grafíska
vinnslu með þjöppuð og/eða dulkóðuð skráasöfn. UTF-8 stafataflan sem KDE
býður upp á fyrir skjöl er með öllum stafrófum og táknkerfum jarðarinnar.
Dolphin er skráaumsjónarkerfi með svipaða möguleika.
rsync er frábært og mjög fjölhæft til að færa möppur milli véla, eða til að
taka öryggisafrit. rclone má nota fyrir öryggisafrit yfir á ýmsar skýjaþjónustur með
skipanalínunni.
- Maxima:
Frjálst (GPL) algebruforrit fyrir öll stýrikerfi. Maxima er byggt á
Macsyma sem smíðað var í MIT upp úr miðjum 7. áratug síðustu aldar.
Maxima er í örri þróun um þessar mundir og er orðið þægilegt í notkun.
Athugið sérstaklega Xmaxima grafíska yfirborðið, eða Maxima "setu" (e. session)
í TeXmacs (WYSIWYG-ritill fyrir LaTeX).
Ég kann líka mjög vel við wxMaxima
grafíska yfirborðið á Maxima. Í því eru flestar skipanir Maxima geranlegar með því að fylla út
reiti, og þá þarf minna að muna um "málfræðina".
- Gnuplot:
Frjálst grafík-forrit fyrir öll stýrikerfi. Með Gnuplot er einfalt að útbúa
birtingarhæf gröf í tveimur eða þremur víddum.
Sumir vinir minna eru hrifnari af Pyplot - Matplotlib.
- Inkscape er gott frjálst hratt vaxandi teikniforrit fyrir
öll stýrikerfi. Blender er enn öflugra frjálst forrit fyrir öll
stýrikerfi fyrir lengra komna.
- Convert-skipunin úr ImageMagick
leyfir hamskipti grafík-skrá milli allra staðlaðra hama, jpg, eps, png, ps, pdf, gif,.... með samhliðavinnslu á skipanalínunni.
- Gimp er frjást öflugt myndvinnsluforrit fyrir öll stýrikerfi.
- TeX: Auðvitað notum við LaTeX
eða pdfLaTeX fyrir alla textavinnslu. TeX og LaTeX eru frjáls setningaforrit fyrir texta fyrir öll stýrikerfi.
Forritin fylgja öllum Linux-dreifingum.
Lengi vel var ég ánægður með að nota ritil eins og Emacs eða
kate úr KDE ásamt skipanalínu,
en kile er þægileg grafísk skel fyrir LaTeX-vinnslu sem
ég nota æ oftar. TeXmaker er frjáls LaTeX-skel fyrir öll stýrikerfi,
og einnig er til TeXstudio.
Sumir yngri vina minna vilja ekkert nema fullkomið WYSIWYG grafískt kerfi ofan á
LaTeX, eins og Lyx eða TeXmacs.
- Með LaTeX-inu nota ég alltaf BiBTeX til þess að sjá um tilvitnanir. Til er grafískt forrit "bibview"
til þess að bæta við tilvitnunum í BiBTeX-gagnabankann, en miklu öflugra er
Java-forritið JabRef til þess. Það gengur á öll stýrikerfi
og býður ýmsa skemmtilega möguleika við vinnu með tilvitnanabankann. Mörg tímarit um eðlis- og stærðfræði
bjóða tilvitnanir tilbúnar beint í BiBTeX. Í KDE er mjög vaxandi forrit
KBibTeX sem ég hef ákveðið að nota framvegis.
- Aspell, dict.org
og málið eru ómissandi við öll ritstörf.
- Octave er frjálst öflugt forrit til tölulegra
reikninga og líkist mjög MatLab.
Enn öflugra er væntanlega SciLab.
- Ekkert forrit býður þó upp á jafn hraða tölulega reikninga og FORTRAN eða C. Því miður er þýðandinn frá Intel lokaður,
en undirstefjusafnið MKL (Math Kernel Library) frá Intel er opið án skráningar
fyrir öll stýrikerfi. Það inniheldur fjölda samhliða undirstefja sem hraða alla reikninga og er einfalt að
nota með gFORTRAN sem einnig er til fyrir öll stýrikerfi.
gFORTRAN býður upp á samhliðavinnslu með OpenMP. Slatec
er annað stórt safn af undirstefjum fyrir FORTRAN. Sem betur fer eru háskólar heimsins farnir að kenna forritun í
python í stað lokaðra mála, en hafið hugfast að túlkuð mál geta ekki boðið upp á
sama keyrsluhraða og þýdd mál eins og FORTRAN og C. C er frábært almennt forritunarmál, en málfræði FORTRAN er miklu
líkari hefðbundinni framsetningu jafna í stærðfræði.
- Fyrir fjarkennslu má nota "skjávarpann" vokoscreen. Hann er opinn
og til fyrir Linux og windows. Hann er einfaldur í uppsentningu með skýrum stillimöguleikum. Með honum er hægt að útbúa upptökur af öllu
sem hægt er að gera á skjánum, óháð forritum. Til er fjöldi annarra forrita fyrir skjávarp, en öflugast þeirra er
OBS studio fyrir öll stýrikerfi. Til að setja OBS studio upp í OpenSuSE þarf að gera það úr
packman-veitunni til að virkja alla úttaksmöguleika. Ég hef notað Inkscape til að skrifa
fyrirlestra- og rannsóknanótur, en nýlega hef ég unnið með xournal++, sem er ákaflega
þjált forrit fyrir alls konar nótur og vistar þær á vigurham svo þær séu skalanlegar. xournal++
er til fyrir öll stýrikerfi.
- Ýmis opin hópvinnutól eru til eins og Riot.im. Í opinni hugbúnaðarþróun er algengt að
not git-þjóna og ýmis opin tól til samskipta.
-
Vel uppsett Linux-dreifing fyrir þá sem ekki eru innvígðir í kerfisstjórn.
Handhæg grafísk stjórnunartól.
Frjáls vefnámskeið um vefinn:
- W3Schools.
- Ég kann lítið um vefforritun, en hef fiktað aðeins við
Bluefish.
Frjáls skrifstofuvöndull fyrir allar tölvugerðir og stýrikerfi
- OpenOffice.
Hví að ánetjast "örlinu hugbúnaðareinveldi" fyrir stórfé?
Eftir að Oracle keypti Sun hafa allar stóru Linux dreifingarnar
fært sig yfir til LibreOffice
.
Er ekki rétt að loka umslaginu á tölvupóstinum stundum?
Til er frjálst dulkóðunarforrit fyrir flest stýrikerfi og póstforrit,
The GNU Privacy Guard:
- GnuPG.
Ef þú vill eiga sögu skjala og forrita sem þú semur er vissara
að athuga
- git. Með git er líka
þægilegt að semja skjöl saman í hópvinnu.
- Ég vil hafa öll kennslugögn opin fyrir allri veröldinni og hef
afrit á eigin vélum sem keyra
Apache vefþjóninn.
Nokkrum sinnum hef ég kennt ásamt öðrum námskeiðið Tölvueðlisfræði.
Við söfnuðum saman ýmsum tengjum á efni sem nýtist við líkanareikninga:
- Tölvueðlisfræði.