TæPei 101 og umhverfi Hsin Koung
Number of images: 16
Created on: föstudagur 18. apríl 2003
TæPei 101
er hæsta hús veraldar sem er verið að byggja í TæPei (ísl. Norðurhjalli)
höfuðborg TæVans (ísl. Hjallabugða)
og verður tilbúið í október 2004 með sína 504 m og 101 hæð.
Annars staðar á HsinChu síðunni okkar er hægt að sjá skrautlegri
myndir frá TæPei en hér hef ég safnað saman yfirlitsmyndum frá
TæPei 101 og síðan loftmyndum teknum úr Hsin Koung (ísl. ný birta)
turninum sem líka
sést á einni mynd. Það er ekki annað hægt en að dást af stórhug landsmanna
við húsbyggingar. Hæsta hús veraldar staðsett í einni mestu jarðskjálftaborg
veraldar! Á TæVan skelfur aðeins oftar í ILan og í HuaLien (ísl. Lótusblóm).
Í húsinu verður komið fyrir 800 tonna þungri spegilfægri stálkúlu
hengdri upp á hæð 92 til þess að gefa betra jafnvægi í fellibyljum og
jarðskjálftum. Undir kúlunni verður boðið upp á kaffi og oolong te
á veitingarhúsi. TæPei 101 stendur sér þar sem það gnæfir langt yfir
nærliggjandi hús sem ná mest 20 hæðum og mun líta út eins og bambusteinn,
sem vaxa einmitt hér út um allt. Útlitið er því mjög tævanskt
og innan á húsið að endurspegla tævanska og kínverska menningu.
Hsin Koung turninn er 44 hæðir og gnæfir yfir lestarstöðinni í TæPei.
Úr honum sést vel hraðbraut á stólpum sem liggur í gegnum borgina. Undir
henni liggur ein fjölfarnasta gata borgarinna. Um kvöldmatarleitið
rúlla um hana bílar og vespur í því líku magni að ekki er hægt annað
en að undrast þéttleikann, enda eru á eyjunni 10 milljónir vespa.
Undir þeirri braut er kjallari með tveggja kílómetra langri verslunargötu.
Þar býst öll almenn verslunarvara á kjaraverði.
TæPei er einhver athyglisverðasta og líflegasta borg veraldar
og sú þéttbýlasta.
Í henni má finna einstæð söfn, bókabúðagötur,
óteljandi markaði fyrir allt milli himins og jarðar, átmílur
(raðir eldhúsa og veitingarstaða), og sérlega vingjarna tævani.
Innfæddir frá suðurhluta TæVan bæta venjulega við að í TæPei
sé aðeins tvenns konar veður, of heitt eða of kalt. Hitastigið
fer þó aldrei niður fyrir íslenskan sumarhita í janúar, en
er oft 30 - 39 gráður með miklum raka yfir sumarið, enda er
borgin rétt norðan hvarfbaugs.
im_01.jpg
(54 Kb)
|
im_02.jpg
(62 Kb)
|
im_03.jpg
(132 Kb)
|
im_04.jpg
(135 Kb)
|
im_05.jpg
(33 Kb)
|
im_06.jpg
(50 Kb)
|
im_07.jpg
(138 Kb)
|
im_08.jpg
(96 Kb)
|
im_09.jpg
(103 Kb)
|
im_10.jpg
(146 Kb)
|
im_11.jpg
(220 Kb)
|
im_12.jpg
(166 Kb)
|
im_13.jpg
(162 Kb)
|
im_14.jpg
(160 Kb)
|
im_15.jpg
(129 Kb)
|
im_16.jpg
(126 Kb)
|